
Hittumst í góðu tómi í Sigtúni 42, 105 Reykjavík, Mannréttindahúsinu.
Skoðum aðstöðuna okkar til funda og skrifstofuna.
Njótum samveru og tökum létt spjall.
Veitingar í boði 

Klukkan 14:30 ætlar Jóhann Hauksson sérnámslæknir í taugalækningum að segja okkur frá rannsókn á faraldsfræði MND á Íslandi sem hann vinnur að um þessar mundir.