Skip to main content

Skilmálar

Vegna fjölbreyttrar starfsemi MND félagsins berast gögn sem geyma persónuupplýsingar. Sum gögnin innihalda viðkvæmar persónuupplýsingar. Ef þú hefur látið eða ætlar að láta slíkar upplýsingar af hendi til MND félagsins þá hvetjum við þig til að lesa þessa persónuverndarstefnu vel.  Hafðu jafnframt í huga að ef þú óskar eftir að við förum með þínar upplýsingar á annan máta en fram kemur í þessari stefnu þá er þér velkomið að láta okkur vita í síma: 565-5727 eða á netfangið: mnd@mnd.is 

Persónuverndarstefna MND félagsins á Íslandi

Persónuvernd þín skiptir MND félagið miklu máli. Þú stjórnar hverjum þú treystir fyrir upplýsingum um þig. Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingum er safnað um þig, hvers vegna það er gert, hvernig unnið er með þær, hvort þeim sé eytt eða þær varðveittar og þá hve lengi.

MND félagið meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Notkun og meðferð persónuupplýsinga hjá MND félaginu

Öryggismál:  upplýsinga- og gagnaöryggi

  • Allir starfsmenn MND félagsins og stjórn þess eru bundin trúnaði við þig og hafa undirritað yfirlýsingu um þagnareið. MND félagið á Íslandi leggur áherslu á í allri starfsemi sinni að leynd upplýsinga um þig sé virt í raun. MND félagið hefur það að markmiði að nota hvorki né safna persónuupplýsingum nema þær séu til hagsbóta fyrir þig eða nauðsynlegar starfseminnar vegna.
  • MND félagið mun ekki undir neinum kringumstæðum afhenda þriðja aðila persónuupplýsingar um þig nema þú hafir óskað eftir því skriflega. Í þessu sambandi er ágætt að benda á að starfsemi félagsins fellur ekki undir lög um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 né upplýsingalög nr. 140/2014
  • MND félagið leggur mikla áherslu á öryggi og virka vernd persónugreinanlegra upplýsinga um þig og vandar val á fyrirtækjum sem þjónusta félagið á sviði öryggis- og tæknimála. Fyrirtækin eru: ÖBÍSecuritas hf. og Stefna ehf. Öll fyrirtækin hafa sett fram persónuverndarstefnu og hafa skuldbundið sig til að framfylgja lögum um persónuvernd og vinnslu upplýsinga.

 Styrkir

  • Sækir þú um styrk hjá MND félaginu er óskað eftir  upplýsingum um nafn þitt, símanúmer, netfang, ástæðu og upphæð styrkbeiðni.
  • Starfsmaður og stjórn félagsins hefur aðgang að gögnunum. Þau sjá styrkumsóknirnar á lokuðum fundi. Þessi gögn fara aldrei úr húsi.
  • Samþykki stjórn félagsins umsókn þína mun starfsmaður félagsins í framhaldinu óska eftir frekari gögnum (afritum), s.s. upplýsingum um reikningsnúmer og annað tilheyrandi.
  • Hafni stjórn félagsins umsókn þinni er umsókninni eytt en þú færð svar í tölvupósti.

Ráðgjöf

  • Ef þú óskar eftir ráðgjöf símleiðis hjá MND félaginu og hringir á auglýstum símatíma ertu ekki beðin/n um neinar persónuupplýsingar. Þú ákveður hvaða upplýsingum þú deilir með ráðgjafanum.
  • Pantir þú tíma hjá ráðgjafa er óskað eftir nafni og símanúmeri til að hægt sé að minna þig á tímann.  Þú munt síðan fá spurningu um hvað málið varðar. Tilgangurinn með spurningunni er að svarið gæti auðveldað ráðgjafanum að undirbúa fundinn með þér.  Þitt er valið hvort þú svarir þessu og nægilegt er að gefa örstutt svar.
  • Þessar upplýsingar um þig eru skráðar og varðveittar þar til fundi er lokið.  Óskir þú eftir frekari aðstoð ráðgjafa varðandi þín mál þá skrifar þú undir upplýst samþykki. Síðan  gefur þú ráðgjafanum þær upplýsingar sem málið varðar. Hann tryggir öryggi allra gagna þar til málinu er lokið. Gögnunum verður eytt nema þú óskir sérstaklega eftir að hann geymi gögnin lengur.

Tölfræðilegar upplýsingar um þig

Áður en upplýsingum um þig er eytt er tölfræði unnin sem er ópersónugreinanleg. Dæmi um tölfræðiupplýsingar eru: fjöldi fólks sem leitar ráðgjafar hjá MND félaginu á hverju ári eða mánuði, fjöldi símtala eða umsækjenda um styrki. Þessi vinnsla er ópersónugreinanleg.

21. júlí 2018

Ath. Persónuverndarstefna MND félagsins getur tekið breytingum. Ef um veigamiklar breytingar er að ræða verða þær kynntar sérstaklega á vef félagsins. Réttindi þín verða ekki takmörkuð án yfirlýsts samþykkis. Eldri útgáfur af persónuverndarstefnunni verða vistaðar í tölvukerfi félagsins.

Vafrakökur

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna MND á Íslandi að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.

Hvað er vafrakaka?

Vafrakökur eru smáar textaskrár geymdar í þeim vafra sem þú notar hverju sinni og eru almennt notaðar til að fá vefsvæði til að virka eða til að starfa betur og skilvirkar. Vafrakökur geyma t.d kjörstillingar notanda, sjá til þess að hann þurfi ekki að skrá sig inn í hvert skipti sem hann heimsækir vefinn og afla upplýsinga um notkun vefsins til að auðvelda stjórnendum hans vefgreiningar með það að markmiði að bæta upplifun notenda hans.

Hvaða vafrakökur notar þessi vefur?

Þessi vefur notar eftirfarandi vafrakökur:

Vafrakökur: _gat, _gid, _ga

Vafrakökur sem notaðar eru af Google Analytics til að greina umferð um vefinn. Upplýsingarnar eru notaðar til að skoða hvaða vefhlutar eru notaðir meira en aðrir og bæta þjónustu vefsins við notendur hans.

Vafrakökur: phpsessid

Þessi vafrakaka er notuð þegar vefurinn er forritaður í php. Hún er notuð fyrir login á vefinn og er meðal annars til þess að notandinn þurfi ekki að skrá sig inn á milli síðna sem hann er að vinna í á vefnum.

Hvernig eyði ég vafrakökum?

Þú getur eytt öllum þeim vafrakökum sem þinn vafri geymir. Leiðbeiningar um það fyrir Internet Explorer eru hér og Google Chrome hér.