Skip to main content
Fréttir

Minning

By 16. mars 2026No Comments
Í dag kveðjum við ritara MND á Íslandi.
Ægir var einstakur maður, traustur vinur og ómetanlegur liðsmaður í baráttunni gegn MND. Árið 2004, þegar Guðjón Sigurðsson góður vinur hans greindist með MND og tók að sér formennsku í félaginu, steig Ægir fram og varð ritari félagsins. Frá þeirri stundu lagði hann málefninu lið af heilindum, hlýju og óbilandi tryggð.
Minning hans lifir í þeim sem nutu vináttu hans, krafts og góðvildar. Við þökkum fyrir Ægi, fyrir störf hans í þágu MND á Íslandi og fyrir þá ómetanlegu tryggð sem hann sýndi allt til enda.
F.h. MND á Íslandi
María Lovísa Guðjónsdóttir
Framkvæmdastjóri