Skip to main content
FréttirGreinar

Aðstandendafundir hefjast á ný 23.september!

By 18. september 2024No Comments

Fyrsti aðstandendafundur vetrarins verður núna á mánudaginn 23.september kl. 17.

Almennt verða fundirnar frá kl. 18-19 en þessi fyrsti fundur verður kl. 17.

Fundirnir fyrir áramót verða á þessum dögum:

Mánudaginn 23.sept kl. 17-18
Þriðjudaginn 15.okt kl. 18-19
Miðvikudaginn 20.nóv kl 18-19
Mánudaginn 16.des kl. 18-19

Fagaðilar frá Samskiptastöðinni sjá um aðstandendafundina.

Markmið fundanna er að veita aðstandendum skýrari sýn á þá flóknu stöðu sem fylgir því að eiga einhvern að sem glímir við MND sjúkdóminn. Farið er í það hjálparleysi sem algengt er að aðstandendur upplifa samhliða veikindum. Kenndar eru hjálplegar leiðir til stuðnings og bjargráð fyrir aðstandendur.

Það að taka þátt í hópi sem þessum gefur aðstandendum tækifæri til þess að ræða stöðu sína við jafningja samhliða því að fá fræðslu og stuðning fagfólks.