Persónuverndarstefna MND félagsins á Íslandi
Persónuvernd þín skiptir MND félagið miklu máli. Þú stjórnar hverjum þú treystir fyrir upplýsingum um þig. Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingum er safnað um þig, hvers vegna það er gert, hvernig unnið er með þær, hvort þeim sé eytt eða þær varðveittar og þá hve lengi.
MND félagið meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Notkun og meðferð persónuupplýsinga hjá MND félaginu
Öryggismál: upplýsinga- og gagnaöryggi
- Allir starfsmenn MND félagsins og stjórn þess eru bundin trúnaði við þig og hafa undirritað yfirlýsingu um þagnareið. MND félagið á Íslandi leggur áherslu á í allri starfsemi sinni að leynd upplýsinga um þig sé virt í raun. MND félagið hefur það að markmiði að nota hvorki né safna persónuupplýsingum nema þær séu til hagsbóta fyrir þig eða nauðsynlegar starfseminnar vegna.
- MND félagið mun ekki undir neinum kringumstæðum afhenda þriðja aðila persónuupplýsingar um þig nema þú hafir óskað eftir því skriflega. Í þessu sambandi er ágætt að benda á að starfsemi félagsins fellur ekki undir lög um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 né upplýsingalög nr. 140/2014
- MND félagið leggur mikla áherslu á öryggi og virka vernd persónugreinanlegra upplýsinga um þig og vandar val á fyrirtækjum sem þjónusta félagið á sviði öryggis- og tæknimála. Fyrirtækin eru: ÖBÍ, Securitas hf. og Stefna ehf. Öll fyrirtækin hafa sett fram persónuverndarstefnu og hafa skuldbundið sig til að framfylgja lögum um persónuvernd og vinnslu upplýsinga.
Styrkir
- Sækir þú um styrk hjá MND félaginu er óskað eftir upplýsingum um nafn þitt, símanúmer, netfang, ástæðu og upphæð styrkbeiðni.
- Starfsmaður og stjórn félagsins hefur aðgang að gögnunum. Þau sjá styrkumsóknirnar á lokuðum fundi. Þessi gögn fara aldrei úr húsi.
- Samþykki stjórn félagsins umsókn þína mun starfsmaður félagsins í framhaldinu óska eftir frekari gögnum (afritum), s.s. upplýsingum um reikningsnúmer og annað tilheyrandi.
- Hafni stjórn félagsins umsókn þinni er umsókninni eytt en þú færð svar í tölvupósti.
Ráðgjöf
- Ef þú óskar eftir ráðgjöf símleiðis hjá MND félaginu og hringir á auglýstum símatíma ertu ekki beðin/n um neinar persónuupplýsingar. Þú ákveður hvaða upplýsingum þú deilir með ráðgjafanum.
- Pantir þú tíma hjá ráðgjafa er óskað eftir nafni og símanúmeri til að hægt sé að minna þig á tímann. Þú munt síðan fá spurningu um hvað málið varðar. Tilgangurinn með spurningunni er að svarið gæti auðveldað ráðgjafanum að undirbúa fundinn með þér. Þitt er valið hvort þú svarir þessu og nægilegt er að gefa örstutt svar.
- Þessar upplýsingar um þig eru skráðar og varðveittar þar til fundi er lokið. Óskir þú eftir frekari aðstoð ráðgjafa varðandi þín mál þá skrifar þú undir upplýst samþykki. Síðan gefur þú ráðgjafanum þær upplýsingar sem málið varðar. Hann tryggir öryggi allra gagna þar til málinu er lokið. Gögnunum verður eytt nema þú óskir sérstaklega eftir að hann geymi gögnin lengur.
Tölfræðilegar upplýsingar um þig
Áður en upplýsingum um þig er eytt er tölfræði unnin sem er ópersónugreinanleg. Dæmi um tölfræðiupplýsingar eru: fjöldi fólks sem leitar ráðgjafar hjá MND félaginu á hverju ári eða mánuði, fjöldi símtala eða umsækjenda um styrki. Þessi vinnsla er ópersónugreinanleg.
21. júlí 2018