Skip to main content
Uncategorized

Aðstandendafundur í kvöld, 15.okt kl. 18-19

By 15. október 2024No Comments
Aðstandendafundur á í kvöld þann 15.okt frá kl. 18-19 í Sigtúni 42💛 Allir aðstandendur velkomir!
Markmið fundanna er að veita aðstandendum skýrari sýn á þá flóknu stöðu sem fylgir því að eiga einhvern að sem glímir við MND sjúkdóminn. Farið er í það hjálparleysi sem algengt er að aðstandendur upplifa samhliða veikindum. Kenndar eru hjálplegar leiðir til stuðnings og bjargráð fyrir aðstandendur.
Það að taka þátt í hópi sem þessum gefur aðstandendum tækifæri til þess að ræða stöðu sína við jafningja samhliða því að fá fræðslu og stuðning fagfólks.
Íris Eik Ólafsdóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur frá Samskiptastöðinni sér um aðstandendafundina.