Aðstandendafundur
3. febrúar @ 18:00 - 19:00

Elísabet Guðmundsdóttir félagsráðgjafi sér um fundina ásamt Maríu Lovísu Guðjónsdóttur sem er framkvæmdastjóri MND á Íslandi og er sjálf aðstandandi.
Markmið fundanna er að veita aðstandendum skýrari sýn á þá flóknu stöðu sem fylgir því að eiga einhvern að sem glímir við MND sjúkdóminn. Farið er í það hjálparleysi sem algengt er að aðstandendur upplifa samhliða veikindum. Kenndar eru hjálplegar leiðir til stuðnings og bjargráð fyrir aðstandendur.


