Spánverjar sendu okkur eftirfarandi sem þeir kalla „boðorð sjúklinga“. Samtök þeirra kalla þeir ADELA og eru þau staðsett í Valencia. Við þökkum þeim fyrir og vonum að íslenskir MND sjúklingar geti notfært sér þetta þó að sumt sé hægara sagt en gert.
- Reyndu aldrei að gera eitthvað sem þú veist að þú getur ekki, leyfðu ekki heldur öðrum að gera eitthvað fyrir þig sem þú veist að þú getur gert sjálfur.
- Aðlagaðu umhverfið að ástandi þínu með því að nota þau hjálpartæki sem þú getur komist yfir, hjálpartæki sem geta bætt upp skemmda vöðva.
- Vertu í sambandi við þá sem svipað er ástatt um, á þann hátt eykst kjarkur þinn.
- Veldu þér viðfangsefni þar sem möguleikar þínir minnka ekki þrátt fyrir sjúkdóminn. Haltu líkamlegri virkni í hámarki án þess þó að þreyta þig.
- Finndu leið til þess að vera gagnlegur öllum í kringum þig. Samvinna minnkar álagið.
- Leyfðu ekki þunglyndi, deyfð eða áhugaleysi að ná tökum á þér. ?að leiðir ekki til góðs heldur getur ástand þitt versnað.
- Notaðu ímyndunaraflið sem verkfæri til þess að forða þér frá þeirri einangrun sem MND getur valdið.
- Ekki finnast þér þú vera óæðri þó að þú sért öðruvísi, stattu á rétti þínum til að vera hamingjusamur einstaklingur.
- Leitaðu hjá sjálfum þér að þeim styrk sem þú þarft til þess að geta haldið áfram og þú kemst að því að MND getur ekki haft áhrif á það besta í þér ef þú vilt ekki að hann geri það.
- Misstu aldrei vonina. Enginn hefur enn fundið lækningu en einhvern tímann mun einhver gera það, kannski fyrir þig?
Upprunalega skrifað 31.8.2003 –