Uncategorized

28.október – aðstandendafundur

By 19. október 2026No Comments
Aðstandendafundur miðvikudaginn 28. október!
Hvar? Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42.
Hvenær? Kl. 18:00–19:00.
Fyrir hverja? Alla aðstandendur einstaklinga með MND.
Á aðstandendafundum hittumst við í óformlegu umhverfi, spjöllum saman og deilum reynslu okkar í trúnaði og af gagnkvæmri virðingu.
Hvert og eitt okkar mætir á sínum eigin forsendum. Það er engin krafa um að tjá sig eða deila sinni reynslu. Það er alveg jafn velkomið að koma, hlusta og njóta samverunnar.
Við vitum að það getur verið stórt skref að mæta í fyrsta sinn, en vonum að sem flest finni sig velkomin. Hér er pláss fyrir öll, óháð því hvar þau eru stödd í aðstandendahlutverkinu. 🩵
Ef einhverjar spurningar vakna varðandi fundinn, ekki hika við að hafa samband á maria@mnd.is.

Hlökkum til að sjá ykkur!